29.03.1921
Neðri deild: 29. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í C-deild Alþingistíðinda. (2742)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

Frsm. minni hl. (Sigurður Stefánsson):

Hv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.), sem nú var að enda með sinn sparnaðarlestur, sagði, að sparnaður dýrtíðaruppbótar samkvæmt hinu nýja frv. okkar kæmi ekki fyr en eftir ár eða seinna. En þetta er misskilningur. Frv. ætlast til, að bráðlega verði samin ný verðlagsskrá, sem hlýtur að lækka dýrtíðaruppbótina þetta ár að stórum mun. Annars er það mál ekki til umr. nú, svo þess vegna sje jeg ekki ástæðu til að svara honum frekara.