22.04.1922
Neðri deild: 53. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

89. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jón Þorláksson:

Jeg vil bera af mjer, að jeg hafi tortrygt sendiherrann eða sendinefndina. En þegar ekki er hægt að fá meiri upplýsingar um málið en eitt skeyti, sem þar að auki er tvírætt, þá verð jeg að segja, að svarið sje ekki fullnægjandi.

Hæstv. forsrh. hefir að vísu lýst skoðun sinni á málinu nægilega skýrt, en ekki á hverju hann byggir þá skoðun.