03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (1298)

40. mál, hæstiréttur

Forseti (B. Sv.):

Mjer hefir borist svo hljóðandi rökstudd dagskrá frá hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.):

Í því trausti, að stjórnin íhugi mál þetta til næsta þings, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Er dagskrá þessi þá einnig til umræðu.