16.02.1922
Neðri deild: 2. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (16)

Sætaskipan

Forseti (B.Sv.):

Þingsköp mæla að vísu svo fyrir að hluta skuli um sætaskipun í þingsal á 1. fundi deildarinnar. Eins og háttv. þm. er kunnugt, fórst fyrir að framfylgja þessu ákvæði í þingsköpunum á síðasta fundi, og með því að allmargir þm. hafa óskað þess að fá að halda sæti sínu, þá ætla jeg að leyfa mjer að leita þeirra afbrigða, að ekki verði hlutað um sæti á þessu þingi.