06.03.1922
Efri deild: 14. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (1708)

42. mál, landhelgisgæsla

Halldór Steinsson:

Fresturinn til morguns er betri en enginn frestur, og þykir mjer sjálfsagt að taka þann kostinn heldur. Jeg vona, að hv. deildarmenn sjeu mjer sammála og hrapi ekki of mjög að þessu stórmáli að óþörfu.