03.05.1923
Neðri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1792 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

11. mál, fátækralög

Bjarni Jónsson:

Jeg hefi nú lagað brtt. mína að nokkru, frá því sem hún var við 2. umr. Það var fundið að henni þá, að hún væri ekki rjettilega orðuð, og því vænti jeg nú, að háttv. deild fallist á hana, þar sem mjer hefir virst, að fleiri væru henni fylgjandi en háttv. 1. þm. Rang. (GunnS). Vil jeg nú þakka honum fyrir hönd kjósenda hans, er hann nú er kominn til viðurkenningar þess, sem rjett er, og vill veita þeim þau hlunnindi, er brtt. mínar fara fram á.