09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (2279)

116. mál, friðun á laxi

Guðmundur Ólafsson:

Jeg óska helst að málið verði alveg tekið af dagskrá. Annars vil jeg geta þess viðvíkjandi 1. máli á dagskránni, að enda þótt nál. hafi legið fyrir frá meiri hl. fjhn., þá gat minni hl. ekki verið búinn að skila nál., en það mun vera tilætlunin með því að vísa málum til nefnda, að þau sjeu athuguð þar frá öllum hliðum. Mun sú meðferð, sem höfð var á þessu máli, einsdæmi.