25.04.1923
Efri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í C-deild Alþingistíðinda. (2712)

148. mál, afhending á landi til kirkjugarðs í Reykjavík

Frsm. (Einar Árnason):

Við nánari athugun á 1. gr. frv., sýnist nefndinni rjett að breyta máli á tveimur síðustu málsliðum greinarinnar, til þess að það geti ekki valdið neinum misskilningi. Hefir nefndin því borið fram brtt. á þskj. 444, sem skýrir þetta. Vænti jeg því, að málið á 1. gr. verði svo greinilegt og ljóst, að það geti ekki valdið misskilningi, ef brtt. verður samþykt.