21.04.1923
Efri deild: 45. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (3144)

131. mál, tryggingar Íslandsbanka fyrir enska láninu

Ingibjörg H. Bjarnason: Jeg ætla aðeins að gera stutta grein fyrir brtt. minni á þskj. 348. Var hún upprunalega gerð í miðlunarskyni. En nú hefir hv. flm. (EÁ) lýst yfir því, að hann geti hvorki fylgt minni brtt. nje hinni. En Nd. batt enda á þetta mál í gær, eins og kunnugt er, með því að samþykkja brtt. hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) með 16:10 atkv. Af því að jeg tel óviðfeldið, að úr Ed. komi slík till., sem hlyti að veikja till. Nd., ef hún væri ekki svipuð að efni og orðalagi, þá tek jeg mína till. aftur.