25.04.1923
Efri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í D-deild Alþingistíðinda. (3321)

146. mál, prestsþjónusta í Mosfellsprestakalli

Forsætisráðherra (SE):

Jeg vildi skjóta því til hv. flm. (JJ), hvort hann sæi sjer ekki fært að taka þáltill. aftur, ef stjórnin lýsti því yfir, að hún skuli ráða málinu til lykta á þann haganlegasta hátt, er hún má. Get jeg, fyrir stjórnarinnar hönd, lýst því yfir, að svo muni gert.