25.04.1923
Neðri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

Afgreiðsla þingmála

Jón Baldvinsson:

Jeg vil bera fram þau tilmæli til hæstv. forseta, að hann skori á nefndir að skila af sjer málum, sem hjá þeim liggja. Og mæli jeg þetta sjerstaklega til háttv. allshn., sem hefir fengið til meðferðar mál frá mjer, sem enn er ókomið frá henni.