09.05.1923
Efri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

54. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur

Frsm. (Jón Magnússon):

Jeg hefi engu við að bæta það, sem nál. segir. Háttv. allshn. Nd. hefir gengið frá máli þessu og hjálpað til við samningagerð milli Reykjavíkur og hlutaðeigandi sveitarfjelaga. Hygg jeg rjett vera, að mál þetta gangi fram.