25.04.1924
Efri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)

33. mál, friðun á laxi

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi aðeins leyfa mjer að koma fram með þá till., að málinu verði vísað til stjórnarinnar. Eins og hv. 5. landsk. hefir upplýst, þá er málið órannsakað, og sje jeg því ekki ástæðu fyrir hv. deild að ræða það meira að þessu sinni.