28.04.1924
Efri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)

33. mál, friðun á laxi

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil aðeins láta í ljós, að jeg hefi í engu breytt skoðun í þessu máli síðan það var til 2. umr. hjer. Sje jeg því enga ástæðu frekar en þá til þess að láta hið rangláta fyrirkomulag, sem sett var á síðasta þingi um laxveiði í Ölfusá, haldast áfram óbreytt.