25.04.1924
Neðri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (1468)

29. mál, hæstiréttur

Forseti (BSv):

Jeg hefi ekkert á móti því að taka málið af dagskrá, en 4 hv. þm. hafa kvatt sjer hljóðs, og jeg hafði hugsað mjer að halda fundi áfram til kl. 5, en yrði málið ekki útrætt þá, að fresta umr. til föstudags.

En þar sem óskir hafa komið fram frá ýmsum nefndum, að málinu sje frestað, þá get jeg borið það undir hv. deild, hvort hún vill nú þegar fresta umr. til föstudags.