05.04.1924
Neðri deild: 43. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2134 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg vil aðeins beina því til hv. landbn., að hún athugi til 3. umr. og spyrji stjórn Landsbankans, hvort hún telji sjer fært að kaupa veðdeildarbrjef fyrir 90%, og hvort hún vilji þá leið fremur en þessa. Þetta mál hefir margar hliðar og krefst rækilegrar íhugunar, eins og fram hefir komið.

Eins og þeir háttv. þdm. muna, sem átt hafa hjer sæti áður, hefi jeg ásamt hv. þm. Mýra. (PÞ) lagt til að stofna sjerstaka lánadeild fyrir landbúnaðinn. Jeg býst við, að geta vikið að því atriði við 3. umr., og skal því ekki tefja umr. í þetta sinn.