14.04.1924
Neðri deild: 50. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í C-deild Alþingistíðinda. (2357)

54. mál, vinnutími í skrifstofum ríkisins

Sigurjón Jónsson:

Jeg býst við því, að þetta frv. verði samþykt, eins og við 2. umr. En jeg held, að rjettast sje að samþ. brtt. mína, þar sem annars er hætt við að þetta verði bara pappírslög, og veit jeg þá, að hv. flm. þætti ver farið en heima setið.