03.03.1924
Neðri deild: 13. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í C-deild Alþingistíðinda. (2514)

58. mál, stofnun háskóla

Forsætisráðherra (SE):

Jeg ætla mjer ekki að hefja umræður um þetta frv. á þessu stigi málsins, en vil aðeins skjóta því til væntanlegrar nefndar, sem fær þetta frv. til meðferðar og að líkindum heldur fund um það í kvöld, að leita álits háskólans, um leið og hún tekur þetta mál til athugunar.