22.02.1924
Neðri deild: 6. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (3152)

24. mál, skipun viðskiptamálanefndar

Forsætisráðherra (SE):

Jeg verð að halda því fram, að jeg hafi skýrt rjett frá í þessu máli. Jeg símaði til sendiherrans í Kaupmannahöfn, eftir samkomulagi við embættisbróður minn, og ekki veit jeg heldur betur en að hann hafi fallist á, að ekki væri vert að gera neitt annað í málinu, úr því að svo skamt væri til þings. Annars býst jeg við, að við munum ekki fara að kljást hjer um þetta efni, og verður hv. deild að reyna að afla sjer þeirrar skemtunar annarsstaðar.