05.03.1924
Neðri deild: 15. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (712)

50. mál, hundahald í kaupstöðum og kauptúnum

Fram. (Jón Kjartansson):

Jeg vonast til þess, að ekki þurfi að verða langar umræður um þetta mál. Eins og sjá má af nál. allshn., þá hefir hún gert breytingar á 1. gr. frv. og fyrirsögn þess. Þótti henni rjett að gera heimildina víðtækari og láta hana ná til hreppsnefnda fyrir kauptúnum. Einnig þótti nauðsynlegt að ákveða sektir fyrir brot gegn ákvæðum reglugerðarinnar, og þess vegna sjálfsagt, að stjórnarráðið staðfesti hana.