30.03.1925
Efri deild: 42. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2400 í B-deild Alþingistíðinda. (1480)

109. mál, sóttvarnalög

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Jeg skal leyfa mjer að geta þess, að þetta frv. er borið fram eftir beiðni hæstv. forsrh. (JM) og að landlæknir hefir samið greinargerð frv. Jeg tel ekki nauðsynlegt að fjölyrða frekar um málið við þessa umr. Allshn. hefir athugað frv., svo að jeg geri ráð fyrir, að það geti gengið gegnum þessa hv. deild án þess að verða vísað aftur til hennar.