29.04.1925
Efri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (179)

1. mál, fjárlög 1926

Fjármálaráðherra (JÞ):

Aðeins örfá orð til þess að láta í ljós þakklæti mitt til hv. fjvn. fyrst og fremst fyrir viðurkenningu þá, er hún hefir fyrir munn hv. frsm. (JóhJóh) veitt mjer fyrir undirbúning fjárlaganna. Verð jeg þó að segja, að það er einatt erfitt að áætla útgjaldaupphæðirnar svo, að ekki verði deilt um einstaka atriði, hvort hæfilega langt sje farið. Að öðru leyti mun jeg geyma mjer að minnast á fáeinar till., sem jeg finn ástæðu til að gera að umtalsefni, þangað til háttv. þdm. hafa gert grein fyrir till. sínum.