06.05.1925
Efri deild: 69. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3247 í B-deild Alþingistíðinda. (2012)

127. mál, seðlaútgáfa

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Jeg vil aðeins geta þess, að þetta frv. er borið fram að ósk hæstv. fjrh. (JÞ). Nefndin er samþykk þessu frv. Það er nauðsynlegt, þar sem frv. stjórnarinnar um fyrirkomulag seðlaútgáfunnar nær auðsýnilega ekki fram að ganga. Óska jeg, að umr. um þetta geti orðið sem stystar; það er þegar búið að vera í nefnd og ætti ekki að þurfa að tefja þar lengur.