09.02.1925
Neðri deild: 2. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)
Stjórnarfrumvörp lögð fram
Forsætisráðherra (JM):
Jeg leyfi mjer hjer með fyrir hönd dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að leggja þessi frv. fyrir þessa háttv. deild:
1. Frv. til laga um styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla.
2. — til laga um breyting á lögum nr. 75, 28. nóv. 1919, um skipun barnakennara og laun þeirra.
Vil jeg mælast til þess, að hæstv. forseti taki þau til meðferðar í þessari hv. deild samkvæmt þingsköpum.