23.02.1925
Neðri deild: 14. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í B-deild Alþingistíðinda. (393)

10. mál, lán úr Bjargráðasjóði

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. landbn. fyrir hina ágætu meðferð hennar á frv. þessu, og vil jeg vona, að lög um þetta efni geti með tímanum komið að miklu gagni hjer á landi, því að skamt verður þess að bíða, að sjóðurinn vaxi um 100 þús. kr. á ári, og verður þá af töluverðu fje að taka.