07.04.1925
Neðri deild: 53. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (786)

75. mál, dócentsembætti við heimspekideild

0786Forsætisráðherra (JM):

Þetta mál er svo kunnugt hv. deild, að jeg álít ekki vert að tefja tímann með því að halda að svo komnu neina ræðu um það. Ætla að láta mjer nægja að fara fram á það við háttv. deild, að þetta mál verði látið ganga til 2. umr. og til hv. mentmn., en umræður um málið verði geymdar þangað til væntanlegt nál. er komið.