07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)

26. mál, ritsíma og talsímakerfi

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg tók það fram áðan skýrt og greinilega, að jeg lít svo á, að þó að þessar símalínur, sem frv. ræðir um, verði samþyktar nú, þá væri ekki þar með ákveðið, hvenær eða í hvaða röð þær yrðu lagðar. Jeg hafði þannig áður svarað því, sem hv. þm. (HK) spurði um.