01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2047)

22. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Sigurður Eggerz:

Það er fullkomlega rjett hjá hæstv. forsrh. (JM), að fullþörf sje á að taka alla kjördæmaskiftinguna til gagngerðrar endurskoðunar. En jeg hefi ekki trú á, að það verði nú fyrst um sinn, því að jeg býst við, að örðugt verði um framkvæmdirnar. Þessvegna get jeg fylgt þessu máli, því að hjer sýnist mjer standa sjerstaklega á, þar sem um er að ræða annan stærsta kaupstað landsins. Mjer sýnist bara hreint og beint bersýnilegt ranglæti að neita kaupstaðnum um þetta.