05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í C-deild Alþingistíðinda. (2289)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Frsm. meiri hl. (Jón Auðunn Jónsson):

Þar sem nál. meiri hl. er rjett að koma úr prentsmiðjunni, þá vænti jeg þess, að hæstv. forseti (BSv) vilji taka málið af dagskrá eða færa það að öðrum kosti til, svo hv. þdm. geti fengið nál. í hendur um leið eða helst áður en málið kemur til umr.