05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í C-deild Alþingistíðinda. (2440)

35. mál, einkasala á útfluttri síld

Frsm. meiri hl. (Sigurjón Jónsson):

Jeg skal aðeins lýsa því yfir, að eins og þskj. 422 ber með sjer, þá er það till. meiri hl. sjútvn., að þetta frv. gangi ekki fram, og er það í fullu samræmi við atkvgr. um það mál, sem afgreitt var hjer næst á undan. Jeg sje ekki ástæðu til þess að ræða málið. Það segir sig sjálft, að ekki verði bæði þessi síldarsölufrv. samþ., og þegar fengið er nóg atkvæðamagn með hinu, þá er auðsjeð, hvernig forlög þessa frv. verða, ef það kemur hjer undir atkv.