05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í C-deild Alþingistíðinda. (2663)
81. mál, Landsbanki Íslands
Ólafur Thors:
Ef hæstv. forseti úrskurðar, að málið verði tekið af dagskrá, vil jeg æskja þess, að boðaður verði nýr fundur í kvöld og tekið verði á dagskrá:
Frv. til 1. um sölu á síld og frv. til 1. um stöðvun á verðgildi íslenskra peninga.
Eftir því, sem hv. frsm. meiri hl. (JAJ) hefir skýrt frá, er von á nál. meiri hl. innan tveggja stunda, svo að ekkert ætti að vera þessu til fyrirstöðu.