07.05.1926
Efri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í D-deild Alþingistíðinda. (2963)

86. mál, rýmkun landhelginnar

Sigurður Eggerz:

Mjer er það ljóst, að hjer er um stórt mál að ræða, og að einhvern tíma verður að byrja á því.

Jeg þykist vita, hvernig sendiförinni skuli háttað og hver maðurinn er, sem senda á. Jeg býst við, að það sje sami maðurinn og áður hefir verið sendur, og jeg beini því til hæstv. stjórnar, að hún velji einmitt þennan mann.