08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í D-deild Alþingistíðinda. (3262)

77. mál, vínsala ríkisins á Siglufirði

Flm. (Einar Árnason):

Jeg vil aðeins gera grein fyrir því, að jeg get ekki fylgt því að vísa þessu máli til stjórnarinnar. — Þegar jeg flutti samskonar till. á þingi fyrir 2 árum, tók jeg hana aftur, af því að hæstv. forsrh. (JM) lofaði að gera það, sem unt væri, og jeg vildi sjá, hvort hæstv. stjórn sæi sjer ekki fært að gera eitthvað í málinu án þess að deildin skæri úr. En nú hefir enginn árangur orðið af því, og neyðist jeg því til að halda till. minni fram.