10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í D-deild Alþingistíðinda. (3297)

115. mál, sjúkratryggingar

Flm. (Jón Baldvinsson):

Jeg sje enga ástæðu til þess, að þessu máli verði vísað til stjórnarinnar á þessu stigi. Till. felur það í sjer, að þetta mál kemur til kasta stjórnarinnar, þegar nefndin leggur fram frv. sitt, og því ekki ástæða til þess að vísa till. til stjórnarinnar. Ef aðiljar verða á eitt sáttir, þá er líklegt, að þetta mikla vandamál verði leyst. Jeg held, að þetta sje heppileg leið til þess að ná árangri.