18.03.1926
Efri deild: 31. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

14. mál, áveita á Flóann

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg hefi reyndar ekki neinu við að bæta ræðu hv. frsm. (ÁH), en vil láta í ljós, að mjer þykir vænt um, að nefndin hefir gengið inn á frv. óbreytt og að málið á í vændum greiðan gang í gegnum þingið. Jeg vona, að ekki muni standa á því að fá færan mann til þess að gera tillögur í þessu máli, sjerstaklega um mjólkurbúin.