26.03.1926
Neðri deild: 41. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í B-deild Alþingistíðinda. (570)

70. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forsætisráðherra (JM):

Það er rjett, að óákveðið er í lögunum um árafjölda dvalar hjer á landi sem skilyrði fyrir ísl. ríkisborgararjetti. Jeg man ekki eftir því, að nokkuð væri tekið fram í fyrra um vöntun skilyrða fyrir þessa menn; jeg man heldur ekki, hvort frv. kom nokkurntíma fram í fyrra, en gerð nefndarinnar er söm í því efni, þó svo hafi verið, því það hefir þá komið svo seint fram, að engin von hefir verið um, að það kæmist í gegnum þingið.