28.03.1927
Neðri deild: 40. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

21. mál, fjárlög 1928

Þórarinn Jónsson:

Jeg hefi ekki annað fram að færa fyrir hönd nefndarinnar en þá ósk, að frv. gangi sem greiðast til 2. umr. En verði þeirri venju fylgt, að þetta tækifæri verði notað til þess að koma fram með aðfinslur í garð hæstv. stjórnar, er líklegt, að það taki langan tíma. Hinsvegar mætti koma því svo fyrir, að vantrauststill. hv. 4. þm. Reykv. (HjV) og eldhúsdagurinn fjellu saman.