01.04.1927
Neðri deild: 44. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)

21. mál, fjárlög 1928

Hákon Kristófersson:

Jeg á við þennan kafla fjárlaganna aðeins eina till., undir tölulið IV. Af athugaleysi hefir hún orðið dálítið skökk hjá mjer; jeg hafði farið eftir frv., en gætti þess ekki að miða hana við brtt. hv. fjvn., svo að jeg leyfi mjer að taka hana aftur til 3. umr.

Um ýmsar brtt. frá hv. þm. og fjvn. ætla jeg ekki að tala, því að jeg álít það enga þýðingu hafa.