23.02.1927
Efri deild: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

12. mál, námulög

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

það er í stuttu máli að segja um frv. þetta, að nefndin er, eins og sjá má af nál., alveg sammála hæstv. stjórn um það, að viðauki þessi við námulögin sje bæði sanngjarn og rjettlátur. Ástæðurnar fyrir þessu er að finna í athugasemdunum við frv., og allshn. sjer ekki ástæðu til þess að bæta neinu þar við, en leggur til, að frv. verði samþ.