30.03.1927
Neðri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í C-deild Alþingistíðinda. (2499)

11. mál, útrýming fjárkláða

Jón Sigurðsson:

Jeg flyt þau skilaboð frá hæstv. atvrh. (MG), sem er bundinn sem stendur við umræður í Ed., að hann óski eftir, að málið verði tekið af dagskrá og fái þá meðferð, sem hv. 2. þm. N.-M. (ÁJ) stakk upp á. Það er ekki nema sjálfsögð kurteisisskylda, er framfylgt er, er stjórn á í hlut, og jeg vænti þess, að hæstv. forseti taki til greina þessi skilaboð.