12.05.1927
Efri deild: 72. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í D-deild Alþingistíðinda. (3360)

121. mál, landsspítali

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Af hendi stjórnarinnar vildi jeg segja það, að þó að hún álíti ekki tímabært að taka lán til þessarar byggingar að svo stöddu, af því hún vonar, að hægt verði að uppfylla gerða samninga án lántöku, þykir henni ekki nema gott, að bent sje með þáltill. á þessa heimild fyrir lántöku frá 1919, ef á þeirri heimild þyrfti að halda. Annars mætti kannske segja, að heimildin væri nokkuð gömul. En þegar hún er rifjuð upp á þennan hátt, hefir stjórnin betri aðstöðu til að vísa til þessarar heimildar, ef þörf gerist. Af hálfu stjórnarinnar er jeg því tillögunni samþykkur.