26.02.1927
Neðri deild: 16. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (3433)

42. mál, milliþinganefndir fyrir tolla- og skattalöggjöf

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg henti á lofti síðustu orð hv. 1. þm. Reykv. (JakM). Hann þykist sjálfur tilheyra frjálslyndum flokki, og hjer eru tveir þm. aðrir, sem tilheyra þeim sama flokki, og hafa þó báðir greitt atkvæði með einkasölu á tóbaki.