25.04.1927
Sameinað þing: 7. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í D-deild Alþingistíðinda. (3511)

114. mál, Landsbanki Íslands setji á fót útibú í Vestmannaeyjum

Forseti (TrÞ):

Mjer hefir verið afhent af hv. þm. Snæf. (HSteins) svohljóðandi till. til rökstuddrar dagskrár :

„Með því að fyrir liggur óuppfylt loforð um stofnun útibús frá Landsbankanum í Stykkishólmi, þykir sameinuðu Alþingi ekki ástæða til að samþykkja þessa till., og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá“.

Þessi rökstudda dagskrá liggur þá einnig fyrir til umr.