16.05.1927
Neðri deild: 76. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í B-deild Alþingistíðinda. (561)

43. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Frsm. (Árni Jónsson):

Háttv. Ed. hefir gert þá breytingu á þessu frv., að hún hefir bætt því við, að knattborð falli undir skemtanaskatt, og ákveðið skatt af hverju borði 30 kr. á mánuði. Allshn. hefir ekki sjeð sjer annar fært en að ganga að þessari breytingu og ræður hv. deild til að samþ. frv.