17.05.1927
Sameinað þing: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3644 í B-deild Alþingistíðinda. (76)

Dansk-íslensk ráðgjafarnefnd

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Út af ræðu hv. þm. N.-Þ. (BSv) vil jeg aðeins taka fram, að jeg hefi aldrei sagt, að það væri krafa frá Dönum um að fjölga mönnum í nefndinni. Heldur hefi jeg sagt, að það væru vinsamleg tilmæli þeirra.