03.03.1927
Neðri deild: 20. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (936)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Jörundur Brynjólfsson:

Það er aðeins örstutt athugasemd. Mjer kemur auðvitað ekki í hug, að þær skuldbindingar, sem stjórnin hefir tekið á sig fyrir Landsbankann, skuli gerðar ógildar. Jeg átti aðeins við það, að rjettara væri að orða þetta á annan hátt og að takmarka rjett stjórnarinnar til nýrra ábyrgða fyrir lántökum milli þinga.