08.02.1928
Neðri deild: 17. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í C-deild Alþingistíðinda. (1630)

74. mál, löggilding verslunarstaðar á Vattarnesi

Magnús Guðmundsson:

Jeg gekk út frá í þeim orðum, sem jeg sagði áðan, að frv. þetta yrði látið ganga fram nefndarlaust, sem algengt er með slík mál. En þar sem hv. flm. hefir nú lagt til, að það sje athugað í nefnd, sem jeg á sæti í, þá geri jeg ráð fyrir, að geta haft áhrif á meðferð málsins í þá átt, sem jeg vjek að áður.