02.04.1928
Neðri deild: 63. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í C-deild Alþingistíðinda. (1783)

135. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Pjetur Ottesen:

8. mars sl. var vísað til mentmn. frv. til laga um viðauka við lög nr. 56, frá 31. maí 1927, um skemtanaskatt og þjóðleikhús. Þar sem nú er liðið nokkuð á 4. viku síðan þessu máli var vísað til nefndar, og ekki hefir bólað á neinni afgreiðslu, þá vildi jeg gera fyrirspurn um það, hvað málinu liði, og jafnframt beina þeirri till. til hæstv. forseta, að hann beitti sinni aðstöðu til þess, að mál þetta gæti komið sem fyrst á dagskrá.