12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í C-deild Alþingistíðinda. (1928)

111. mál, útflutningsgjald af síld o.fl.

Forseti (JörB):

Út af ósk hv. 2. þm. Eyf. um að þetta mál verði tekið fyrir, skal jeg geta þess, að það verður tekið fyrir á morgun. Það er að vísu nokkuð seint, en dagskráin er samin af hæstv. aðalforseta, og vil jeg því ekki breyta henni. Hinsvegar liggja mörg mál fyrir til 3. umr., og er nauðsynlegt að ljúka þeim, svo þau geti komist til efri deildar, er nú hefir lítið að gera.