05.03.1928
Efri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (2080)

115. mál, hagskýrslur

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Jeg hefi skilið suma þessa starfsmenn þannig, að fjmrh. hafi úrskurðað þeim þóknun án þess að reikningar lægju fyrir, og aðra svo, að reikningarnir hafi sjaldan verið greiddir að fullu, en það, sem jeg vildi spyrja um, er það, hvaða regla hafi verið höfð við þessa úthlutun og hvort þessir menn hafi þá gert sig ánægða með hana.